Viðmiðunardagur er 15. október 2024, upplýsingar skulu taka mið af stöðunni í skólanum þann tiltekna dag.
Sláið inn notendanafn og lykilorð sem sent var með tölvupósti 4. nóvember sl Þegar innskráningu er lokið þarf að stofna tengilið, en það er sá aðili sem skilar gögnum fyrir skólann. Inni á vefsvæðinu er sótt sniðmát sem ber heitið Tungumál.xlsx. Þar eru gefnar skýringar og dæmi um lágmarks upplýsingar sem beðið er um. Útfylltri skýrslu er skilað til Hagstofunnar í gegnum vefskilakerfið. Skilafrestur er til 20. nóvember 2024.
Vinsamlega athugið að skráarformat sem skilað er í gegnum kerfið á að vera .xls eða .xlsx.
Nánari upplýsingar og leiðbeiningar veitir Katla Lárusdóttir í síma 528-1228 eða með tölvupósti á gagnasofnun@hagstofa.is